föstudagur, febrúar 15, 2008

afsakanir fyrir lélegt blogg

Jæ já ja það er ansi lang á milli pósta, eina afsökunin sem ég get komið með er að tölvan mín hrundi og er ónýt. Þar fór skáldsagan sem ég var alveg að ljúka við. Var kominn á blaðsíðu 789. Það þarf bara að bíða þá lengur eftir ævisögu laksins góða.
Við hjóninn erum búinn að vera aðeins á flakki með annan fótinn fastann í Öxnadalnum. Erum búinn að fara til höfuðborgarinnar til að selja rauðu þrumuna. Borða kínverska rottu með Særúnu og Snorra. Fara á þorrablót aldarinnar í Fljótsdal, þar söng manna hæst Pavle þar er frost á fróni.
Erum búinn að vera að gera upp húsið, loksins eru tröppurnar upp á aðra hæð orðnar einsog í höll, og löngu búnar að gleyma ljóta gráa teppinu sem lá á þeim.
Donna er í pössun hjá mömmu, hún saknar víst að vera amma og vildi fá að hafa 4 fætta barnabarnið um tíma. Förum og sækjum hana eftir helgi.
Annars er ég að spá í að skippa þessum blogger og finna betra svæði. Vinni í því.
Bestu kveðjur....

þriðjudagur, nóvember 27, 2007

sumarmynd í skammdeginu


Ég átti alltaf eftir að setja inn mynd frá því í Króatíu. Núna í myrkrinu er gott að láta draumana svífa. Með mér á myndinni er vinkona mín sem heitir Nika, einsog staðan er núna getum við bara sungið saman, það er eina tungumálið sem við báðar skiljum. Þarna erum við á eyjunni Krk í bæ sem heitir Baska. Þar dvöldum við eina helgi með mömmu hennar Niku. Æðislegur lítill bær.
Annars veit ég ekki um disk með 270 myndum sem ég tók úti. Ætlaði að vera svo rosalega fyrirhyggjusöm að setja myndirnar á disk og tíni svo helvítinu.

sunnudagur, nóvember 18, 2007

Að Valþjófsstöðum


Svona eru sumar konur þegar þær fara inn í fjárhús, þessar sömu systur dönsuðu einusinni uppá borðum á kaffibarnum. Þær eru ekki að hugsa um það þarna. Þær eru bara hvítar í framan núna.




Við brunuðum síðasta sunnudag í heimsókn austur til Guðveigar og Fúsa. Þarna erum við að skoða reykkofan og Guðveig og Pavle eru fyndinn í framan. Lengst á bakvið sést glitta í jebbafákinn okkar.


Við stoppuðuð á Mývatni á leiðinni til að teygja úr okkur, þarna á bakvið er jeppinn fyrir þá sem hafa beðið spenntir eftir myndum.

laugardagur, nóvember 10, 2007

Svona næstum því typpi



Þar sem mér þótti fullgróft að birta hér mynd af typpinu sem slíku, þá var betri lausn að reyna móta það í brauð. Það má segja að það hafi verið aðeins of mikil lyfting á ákveðnum svæðum í brauðinu, en þetta er nærri lagi. Þess má einnig geta að samkvæmt orðabók háskólans er frjást að segja TYPPI, TIPPI, TILLi, TYLLI, TYTTLINGUR og TITTLINGUR. Ég vil meina að við erum kominn með svona útá landi mállýsku og berum auðruvísi fram en fólk í öðrum fjórðungum.

Næst kemur mynd af Jeppalingi....

miðvikudagur, október 31, 2007

ókey ókey ókey það er kominn vetur


eins og þessi mynd ber greinilega merki.
Ég hitti í kvöld sorphirðumenninnina hjá gámaþjónustu norðurlands. Þeir voru alveg ótrúlega hressir þrátt fyrir að hafa eitt öllum deginum í að reyna að grafa upp ruslapoka, sem hinir gáfuðu snjóhreinsimenn bæjarinns mokuðu snjó yfir þegar þeir ruddu göturnar. En ég hef grun um að þeir á snjóruðningstækjunum stígi ekki í vitið. Þeir þora nefninlega ekki inn í botnlanga, held þeir kunni ekki að bakka og snúa við.
En kannski er þetta ekki þeirra sök, ég fór nefninlega á fund við bæjarverkfræðingin síðasta vetur eftir að hafa ekki getað komist nær húsinu mínu en 150 metar í 2 vikur. Og við ræddum málin, hann lofaði að kíkja á málið, seinna um daginn sá ég hann þeysast í gegnum skafla á jeppanum sínum og svo ekki sögunni meir. Að lokum kom rigning. Það er nefninlega smá munur á Daiwoo lanos hurrycane og jeppa bæjarverkfræðingsins. Til að þurfa ekki að taka þátt í þessum skrípaleik lengur er Brúarlandsfjölskydan komin á 35 tommur og typpið á Pavle minkaði í takt við það.
Pavle er að vinna í mönunninni frá Siggu og situr nú með íslenska stafsetningarorðabók til að undirbúa næsta pistil.

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

sumarið er tíminn..


Góðir gestir hafa litið við og skemmt sjálfum
sér að mér fjarstaddri

Pavle lærði fluguveiði hjá Jöhönnu fænku en þá fór að helli rigna



En hún Jóhanna fluguveiðimeistari bauð okkur að dvelja hjá sér í sumarbústað í Norðurárdal þegar Pavle fékk hastarlegt grasofnæmi í útilegu.


Jóhanna Rokk og Guðni kom líka til landsins og við áttum góðar stundir saman í Hvalfirði

Annars hef ég verið á fullu í vinnu, þeir sem vilja hitta mig geta komið á Halastjörnu...

margt gaman að gera á sumrin


Pavle lærði undirstöðu fluguhnýtinga


Donna drakk úr tjörn á eyjabökkum

Mig langaði ekkert að reyna að fara yfir á vaði


Gott að guð er alltaf nálægt


mánudagur, júní 11, 2007

fleiri myndir handa hungruðum heimi




föstudagur, júní 08, 2007

Aðeins að geyspa


Hér er litla barnið